OA.is     OA logo

OA loforðið

Ég legg hönd mína í þína og saman getum við gert það sem við gátum ekki gert ein. 

31. maí 2010 - Fundir á Hellu og Selfossi falla niður

OA fundirnir á Hellu og Selfossi hafa því miður fallið niður í bili. 

20. maí 2010 - Fundir á Akureyri - BREYTING

OA fundirnir á Akureyri verða hér eftir á mánudögum kl. 18. Fundarstaður er i fundarhúsnæði AA samtakanna við Strandgötu 21. Verið velkominn - tekið er vel á móti nýliðum.

18. mars 2010 - Fundir á Akureyri - BREYTING

OA fundirnir á Akureyri verða hér eftir á sunnudögum kl. 17 og verða fundirnir í hverri viku. Fundarstaður er i fundarhúsnæði AA samtakanna við Strandgötu 21. Verið velkominn - tekið er vel á móti nýliðum.

18. mars 2010 - Fundur á Akureyri og breytingar á fundum í Reykjanesbæ

Ný OA deild verður stofnuð á Akureyri á laugardaginn 20. mars kl. 16:00. Fundarstaður er i fundarhúsnæði AA samtakanna við Strandgötu 21. Vertu velkominn á fund hjá okkur og við tökum vel á móti nýliðum.

Fundirnir í Reykjanesbæ verða hér eftir á fimmtudögum kl. 20 og verða staðsettir í Virkjun, Flugvallavegi 740, Ásbrú, Reykjanesbæ. Allir velkomnir!

4. mars 2010 - Fundur á Akureyri

Næstkomandi laugardag verður OA fundur í AA húsinu við Strandgötu 21, kl. 16. Allir velkomnir sem vilja kynna sér málið. Þetta verður venjulegur OA fundur en í lok hans verður rætt hvort það sé grundvöllur til að stofna OA deild á Akureyri.
 

2. mars 2010 - Afmælisfundur OA samtakanna

Fimmtudaginn 11. mars verður Afmælisfundur OA samtakanna. Fundurinn verður í húsi SÁÁ, Efstaleiti 7, kl. 20 - 21:30. Á fundinum munu nokkrir OA félagar segja sögu sína. Tilvalinn fundur fyrir alla, nýliðar og aðstandendur OA félaga sérstaklega velkomnir.

6. jan 2010 - OA fundir falla niður

Fundir tveggja OA deilda hafa fallið niður, annars vegar miðvikudagsdeildin í Gula húsinu, Tjarnargötu kl. 20:15 og hins vegar Skype símafundurinn sem var á fimmtudagskvöldum.

17. des 2009 - OA fundur á aðfangadag

Á aðfangadag jóla (fimmtudag í næstu viku) verður OA fundur í AA-húsinu Kaplahrauni 1 í Hafnarfirði. Fundurinn byrjar kl. 12:00 og verður í stóra salnum. Heitt á könnunni og allir velkomnir.

17. nóv 2009 - Aðalfundur OA samtakanna

Aðalfundur OA samtakanna verður haldinn þann 23. nóvember kl. 20 í húsi SÁÁ í Efstaleiti.
Í lok fundarins verður útgáfuhátið vegna útgáfu bókarinnar "12 spor og 12 erfðavenjur OA-samtakanna".
Allir velkomnir!

14. okt 2009 - Haustráðstefna OA samtakanna

Haustráðstefna OA-samtakanna verður haldin í Vallaskóla (Sandvík), Selfossi, þann 24. október næstkomandi.
Að þessu sinni verður haustrástefnan heimatilbúin og á íslensku. Ráðstefnan verður frá kl. 10 til 16:30 og aðgangseyrir er kr. 1.500. Allir OA félagar eru hvattir til að mæta! Nýliðar velkomnir!

14. okt 2009 - Breyttur fundartími miðvikudagsdeildar í Hafnarfirði 

Fundartíma OA fundarins á miðvikudögum í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði hefur verið breytt. Fundurinn hefst nú kl. 19:45 í stað 20:30. Sjá nánar í fundarskránni hér á oa.is.

30. sept 2009 - OA deild á Egilsstöðum

OA deild hefur verið stofnuð á Egilsstöðum. Fundir deildarinnar eru á miðvikudögum kl. 20. Allir velkomnir, nýliðar sem lengra komnir. Sjá nánar um staðsetningu í fundarskrá OA samtakanna.

18. júní 2009 - OA kynningarfundur á Egilsstöðum

Þann 18. júní verður kynningarfundur á Egilsstöðum. Fundurinn verður kl. 20 og staðsetningin er Lyngás 20 (gengið inn hjá Birkitré). Allir sem hafa áhuga á að kynna sér OA samtökin hjartanlega velkomnir. 

2. júní 2009 - Ný deild á Höfn í Hornafirði

Stofnuð hefur verið ný OA deild á Höfn í Hornafirði. Fundir deildarinnar eru á þriðjudögum kl. 19:30 í Rauða Kross húsinu við Víkurbraut.  Verið hjartanlega velkomin.

15. apríl 2009 - Opinn kynningarfundur á laugardaginn

Laugardaginn 18. apríl verður kynningarfundur í Gula húsinu, Tjarnargötu 20,  kl. 11:30 f.h.  Þrír OA-félagar segja sögu sína og hvernig þeir fundu leið til bata frá ofáti. 
Fundurinn er öllum opinn - nýliðar sérstaklega velkomnir! 
Kjörið tækifæri til að kynna sér hvað OA samtökin hafa upp á að bjóða. 

15. apríl 2009 - Fimmtudagsdeild í Reykjavík hættir

Deildin sem hefur verið með fundi á fimmtudögum kl. 20:30 í húsi SÁÁ er hætt.

20. febrúar 2009 - Afmælisfundur OA samtakanna

Mánudaginn 23. febrúar verður haldinn afmælisfundur OA samtakanna. Fundurinn verður í húsi SÁÁ samtakanna, Von, Efstaleiti 7, kl. 20.

Skorum á alla OA félaga til að mæta og fagna með okkur þessum tímamótum og nýliðar eru einnig sérstaklega velkomnir. Sjá nánar hér: http://www.oa.is/afmaelisfundur09.pdf

14. febrúar 2009 - Nýr fundur í Hafnarfirði

Á miðvikudag 18. febrúar verður stofnuð ný deild í Hafnarfirði kl. 20:30. Fundirnir verða í Víðisstaðakirkju.
Þema fundarins er: Skuldbinding um fráhald. Deildin leggur áherslu á að meðlimir hennar skuldbindi sig til fráhalds. Allir hjartanlega velkomnir.

6. febrúar 2009 - Breyttur fundartími hjá sunnudagsdeild í Hafnarfirði

Fundir í sunnudagsdeildinni í Kaplahrauni 1, Hafnarfirði, verða framvegis milli kl. 9:30 og 10:30.
Þetta er AA bókarfundur. Allir alltaf velkomnir.

18. janúar 2009 - Nýir OA fundir á Hellu

Stofnuð hefur verið ný OA deild á Hellu. Fundir deildarinnar eru á mánudögum kl. 20:30 í safnaðarheimili Oddasóknar, Dynskálum 8, Hellu.  Verið hjartanlega velkomin.

18. janúar 2009 - OA fundir á mánudögum

OA fundirnir sem hafa verið á mánudögum kl. 18 í Borgartúninu í Reykjavík eru fallnir niður.

18. desember 2008 - OA fundir yfir hátíðarnar

Aðfangadagur og gamlársdagur bera upp á miðvikudag og fundir miðvikudagsdeildarinnar í Reykjavík verða kl. 12:15, Tjarnargötu 20, í stað þess að vera kl. 20:15.

Jóladagur og nýársdagur ber upp á fimmtudag og fundir fimmtudagsdeildarinnar  Reykjavík verða á sama tíma og vant er í SÁÁ húsinu, Efstaleiti 7. 

Allir aðrir fundir verða á sínum venjulegu fundartímum.

4. desember 2008 - Jólafundur OA samtakanna

Að vera í fráhaldi yfir hátíðirnar er dásamleg gjöf. Sumir kvíða þessum tíma, en það er algjör óþarfi. OA býður upp á leið til bata alla daga ársins.

Miðvikudaginn 10. desember kl. 20:15 ætla þrír OA félagar að deila reynslu sinni, styrk og vonum um það hvernig er að vera í fráhaldi í yfir hátíðarnar og upplifa það besta sem þær hafa upp á bjóða.

Komdu og taktu öll ,,trikkin” með þér heim og hafðu þau með þér um jólin. 
Sjá nánar með því að smella hér: http://www.oa.is/ljosogfridur.pdf 

23. nóvember 2008 - Tvær nýjar OA deildir

Tvær nýjar OA deildir hafa verið stofnaðar. Önnur þeirra er á Selfossi á miðvikudögum kl. 18 og hin er í Borgartúni 6 í Reykjavík kl. 18. Sjá nánar í fundarskránni með því að smella á "allt um fundi". 

Verið hjartanlega velkomin á OA fundi. 

5. október 2008 - Haustráðstefna OA - DAGSKRÁIN

Árleg haustráðstefna OA-samtakanna á Íslandi verður haldin dagana 10. og 11. október í Von, húsnæði SÁÁ, Efstaleiti 7 í Reykjavík. Í ár mun reyndur OA-félagi frá Bandaríkjunum deila með okkur reynslu sinni af OA leiðinni.

Föstudagur: Kl. 20-22. Opinn fundur. Gestir og nýliðar velkomnir. ,,Spíkerinn” segir sögu sína.
Aðgangur ókeypis, en pottur látinn ganga.

Laugardagur: Kl. 9-12 og 13-18. Fráhald í forgang– lifað í lausninni. ,,Spíkerinn” deilir reynslu sinni, styrk og vonum með okkur. Aðgangseyrir 2.500 kr. En ef þú átt ekki pening, komdu samt. 

Eina skilyrðið fyrirþátttöku í OA er löngun til að hætta hömulausu áti. Hægt er að skoða auglýsingu fyrir þennan viðburð hér: http://www.oa.is/HaustradstefnaOA2008.pdf

10. september 2008 - Spíkerfundur í fimmtudagsdeild

Fimmtudaginn 18. september munu tveir erlendir OA félagar segja okkur sögu sína.
 
Fundurinn verður haldinn í Von, húsi SÁÁ, Efstaleiti 7, Reykjavík.
Húsið opnar klukkan 20:00  en fundurinn stendur frá 20:30 - 21:30

31. ágúst 2008 - Kvennaferð OA 

Helgina 19. - 21. september verður farið í kvennaferð OA samtakanna. Þetta er kjörið tækifæri fyrir bæði nýliða og þær sem eru lengra komnar til að ná bústi í bata sinn. Áhugasamar skrái sig í ferðina með því að senda tölvupóst á oa@oa.is. 

10. ágúst 2008 - Haustráðstefna OA

Haustráðstefna OA samtakanna er á sínum stað og að þessu sinni mun hún vera í húsnæði SÁÁ, Von, Efstaleiti 7, dagana 10. og 11. október. Hingað kemur "speaker" frá Bandaríkjunum með langa reynslu af OA samtökunum. Nánari dagskrá verður birt hér á vefnum þegar nær dregur. Þetta er kjörið tækifæri fyrir nýliða til að kynnast OA leiðinni og fyrir lengra komna að styrkja bata sinn.

13. júlí 2008 - breyttur fundartími á mánudagsfundum og föstudagsfundum

Gerðar hafa verið örlitlar breytingar á fundarskránni undanfarið. Föstudagsfundirnir eru núna kl. 17 en ekki kl. 21 og mánudagsfundirnir hefjast nú kl. 12:05 í stað þess að hefjast kl. 12:10.

14. maí 2008 - OA vinnubúðir

Laugardaginn þann 24. maí verða OA vinnubúðir í Snælandsskóla. Þema vinnubúðanna verður Bataverkfærin og henta þær fyrir bæði nýliða og lengra komna. Haldin verða átta 15 mínútna „speak“, eitt um hvert bataverkfæri og svo verður unnið í smærri hópum. Vinnubúðirnar hefjast stundvíslega kl. 9:00 og lýkur kl. 16:00. Hádegishlé verður á milli klukkan 12:00 og 13:00.Aðgangur er 1000 kr. Ef þú átt ekki fyrir því, komdu samt. 

31. mars 2008 - Skypefundir

Frá með fimmtudeginum 3. apríl verða skypefundirnir kl. 19.30 - 20.15 að íslenskum tíma.
Þetta er gert vegna þess að fundirnir eru m.a. ætlaðir fyrir Íslendinga í útlöndum og um síðustu helgi kom sumartími í Evrópu.

17. febrúar 2008 - Hátíðarfundur OA þann 25. febrúar 2008

Í tilefni af 26 ára afmæli OA samtakanna á Íslandi verður haldinn hátíðarfundur mánudaginn 25. febrúar kl. 20:00 í Von, húsi SÁÁ að Efstaleiti 7. Á fundinum munu þrír OA félagar segja frá því hvernig þeir hafa náð bata frá matarfíkn. Sjá auglýsingu hér.

Allir sem hafa áhuga á að kynna sér starf samtakanna eru hjartanlega velkomnir. 

23. janúar 2008 - OA kynningarfundur fyrir konur

Kvennadeild OA ætlar að hafa sérstakan kynningarfund fyrir konur þriðjudaginn 29. janúar, kl. 18:00-19:15, í Gula húsinu, Tjarnargötu 20, 1. hæð, 101 Reykjavík. Nýliðar sérstaklega velkomnir. 

22. janúar 2008 - Ný OA deild í Reykjanesbæ

Stofnuð hefur verið ný OA deild. Fundir deildarinnar eru kl. 20:00 á þriðjudagskvöldum og eru í AA húsinu, Klapparstíg 7, 230 Reykjanesbæ. Allir velkomnir sem vilja kynna sér OA samtökin. Nýliðar sérstaklega velkomnir.  

1. janúar 2008 - Skypefundir á íslensku

Stofnuð hefur verið ný OA deild. Fundir deildarinnar eru kl. 20:30 á fimmtudagskvöldum og eru óháðir staðsetningu. Notast er við Skypeforritið til að funda. Nánari upplýsingar er að finna í fundarskrá OA samtakanna eða hér. Fundirnir eru tilvaldir fyrir þá sem eru staddir úti á landi eða erlendis og þurfa á fundi að halda. Allir velkomnir! 

21. desember 2007 - OA fundir um jólin

Tveir OA fundir falla niður um jólin hjá mánudagsdeildinni í AA húsinu í Kópavogi, annars vegar á aðfangadag kl. 18 og hinsvegar á gamlársdag kl. 18. Allir aðrir OA fundir verða á sínum stað um jólin. 

19. nóvember 2007 - Ný OA deild - Hádegisfundir

Verið er að stofna nýjan OA fund mánudaginn 19. nóv kl 12 á hádegi í Gula húsinu, Tjarnagötu 20, fyrstu hæð (stóra herbergið). Áherslan verður á 12 sporin og fráhaldið og munu fundirnir heita 12 sporin og fráhaldið.  Allir hjartanlega velkomnir. 

28. október 2007 - Aðalfundur OA samtakanna

Aðalfundur OA samtakanna verður mánudaginn 5. nóvember kl. 20 í húsnæði SÁÁ, Efstaleiti 7, Reykjavík. Allir OA félagar hjartanlega velkomnir.

7. ágúst 2007 - OA fundur á mánudögum í Kópavogi

Ný deild hefur verið stofnuð í Kópavogi. Fundir deildarinnar eru kl. 18-19 í AA húsinu, Digranesvegi 12. Fundirnir eru opnir, þannig að allir sem vilja kynna sér starf OA samtakanna eru velkomnir. 

29. júlí 2007 - OA ráðstefna í haust

Hin árlega ráðstefna OA samtakanna á Íslandi (Overeaters Anonymous) verður haldin í safnaðarheimili Seljakirkju, Hagaseli 40, 109 Reykjavík.

Dagskrá ráðstefnunnar er kl. 20:30 – 22:00 föstudagskvöldið 12. október og kl. 10:00 – 15:00 laugardaginn 13. október 2007.Til okkar kemur OA félagi frá Baltimore í Bandaríkjunum með margra ára reynslu af OA leiðinni til að deila með okkur reynslu sinni, styrk og vonum.

Ráðstefnan er opin öllum matarfíklum, jafnt virkum OA félögum sem nýliðum, en fundurinn á föstudagskvöldinu er einnig opinn fyrir aðstandendur og aðra sem hafa áhuga á að kynna sér starf OA samtakanna.

Þátttökugjald er 2.000 kr. á laugardeginum til að standa undir kostnaði við ráðstefnuna, en ef þú átt ekki pening, komdu samt. Á föstudagskvöldinu er ekkert þátttökugjald en potturinn verður látinn ganga.

Þetta er kjörið tækifæri fyrir nýliða til að kynnast OA leiðinni og fyrir lengra komna að styrkja bata sinn.

13. júní 2007 - Ný OA deild stofnuð á Akureyri

Það stendur til að stofna nýja deild á Akureyri. Fundir deildarinnar eru á þriðjudögum kl. 21:00 og eru þeir haldnir í AA húsinu í Strandgötu. Stofnfundur verður þann 19. júní næstkomandi. Allir hjartanlega velkomnir sem vilja kynna sér málið.

11. apríl 2007 - Ný OA deild stofnuð

Ný OA deild hefur verið stofnuð. Fundir deildarinnar verða á fimmtudagskvöldum kl. 20:30 í húsnæði SÁÁ, Efstaleiti 7. Þema deildarinnar verður fall og bati eða "relapse & recovery" (R&R).

Allir velkomnir sem vilja kynna sér málið!

3. april 2007 - Fundir um páskana og OA kvennaferð framundan


Fundir um páskana

OA fundir verða með sama móti og vant er yfir hátíðarnar, enginn fundur mun falla niður.


OA kvennaferð framundan
Farið verður á Hellnar á Snæfellsnesi helgina 27. - 29. apríl og gist á hótel Hellnum. Lagt verður af stað á föstudagskvöldinu og komið verður aftur í bæinn seinnipart sunnudags.

Skipulögð dagskrá verður yfir helgina, m.a. OA fundur, unnið með erfðavenjurnar og 10. 11. og 12.sporið. Einnig verða gönguferðir um svæðið, hugleiðsla og kvöldvaka.

Ferðin er tilvalin fyrir nýliða sem og lengra komna. Þetta er skemmtilegt tækifæri til að þjappa saman hópnum, dýpka skilninginn á prógramminu og hafa gaman!

Verð fyrir gistingu tvær nætur og fullt fæði (enginn sykur og ekkert hvítt hveiti) er 10.900.

Við hvetjum sem flestar til að skrá sig!!
Hægt er að skrá sig á oa@oa.is, í símanúmerið hér fyrir neðan eða á öllum OA fundum.

Frekari upplýsingar gefur Auður í síma 6941056

12. mars 2007 - Viltu koma með á OA ráðstefnuna í Bandaríkjunum?

Mánudaginn 19. mars kl. 21 verður haldinn sérstakur undirbúningsfundur fyrir OA ráðstefnuna í Philadelphiu í Bandaríkjunum sem verður 30. ágúst til 2. september næstkomandi.

Undirbúningsfundurinn verður í kjallara húsnæðis Kennarasambands Íslands, Laufásvegi 81.

Að minnsta kosti 6 OA félagar hafa ákveðið að fara á ráðstefnuna og er ætlunin að nota þennan fund til að fara yfir kostnað, gistimöguleika o.fl.

Ef þú vilt slást í hópinn eða hefur áhuga á að kynna þér málið, kíktu þá endilega á fundinn!

8. febrúar 2007 - OA ráðstefna í Bandaríkjunum

Ekki missa af ráðstefnu heimsþjónustu OA samtakanna 30. ágúst - 2. september 2007 Í Philadelphiu í Bandaríkjunum.

Hringdu inn batann - Lýstu yfir frelsi frá hömlulausu áti.

Frekari upplýsingar er að finna á www.oa.orgog verða einnig birtar hér síðar. Nú þegar hafa nokkrir OA félagar ákveðið að fara og taka þátt í ráðstefnunni. Ef þú vilt slást í hópinn eða fá frekari upplýsingar, getur þú sent inn netfangið sitt á admin@oa.is án allra skuldbindinga.

20. janúar 2007 - 25 ára afmæli OA samtakanna - hátíðarfundur

Fimmtudaginn 22. febrúar verður sérstakur hátíðarfundur hjá OA. Tilefnið er 25 ára afmæli OA samtakanna á Íslandi. Fundurinn verður í nýju húsi SÁÁ samtakanna, Von, Efstaleiti 7, kl. 20.

Skorum á alla OA félaga til að mæta og fagna með okkur þessum tímamótum og nýliðar eru einnig sérstaklega velkomnir.

9. janúar 2007 - OA kynningarfundur laugardagsdeildar

Laugardagsdeild OA í Reykjavík hefur ákveðið að hafa kynningarfund í stað hefðbundins fundar næstkomandi laugardag Í Gula húsinu, Tjarnargötu 20, kl. 11:30 - 12:45. Þrír til fjórir OA félagar munu segja sögu sína.

Allir velkomnir sem vilja kynna sér OA samtökin og hvað þau gera. Nýliðar sérstaklega velkomnir.

21. desember 2006 - Fundir yfir jólahátíðina

Aðfangadag og gamlársdag ber nú upp á sunnudag og sunnudagsdeildin í Hafnarfirði mun vera með sína hefðbundnu sunnudags OA fundi kl. 12 að Kaplakrika 1, Hafnarfirði.  Allir velkomnir. 

26. nóvember 2006 - Æðruleysismessa með OA þema

Í kvöld, sunnudaginn 26. nóvember kl. 20:00, er æðruleysismessa í Fríkirkjunni í Hafnarfirði. Að þessu sinni segir OA félagi sögu sína og OA félagar lesa OA loforðin og fleira.
 
Verið velkomin.

25. október 2006 - OA ráðstefna í nóvember

OA ráðstefna verður haldin í skátaheimilinu Vífilsfelli, Bæjarbraut 7, Garðabæ að kvöldi föstudagsins 17. nóvember og laugardaginn 18. nóvember.

Við höfum boðið OA félaga frá Bretlandi með margra ára reynslu af OA leiðinni til að koma og deila með okkur reynslu sinni, styrk og vonum.

Föstudagur 17. nóvember
19:00 húsið opnar
20:00 – 22:00 Gestur okkar segir sögu sína

Laugardagur 18.nóvember
09:00 húsið opnar
10:00 – 12:15 „Spík“
12:15 – 13:15 Hádegishlé
13:15 – 13:45 Aðalfundur OA samtakanna
14:00 – 18:00 „Spík“

Þetta er kjörið tækifæri til að kynnast nýjum og gömlum OA félögum. Ráðstefnan er opin öllum matarfíklum, jafnt virkum OA félögum sem nýliðum, en fundurinn á föstudagskvöldinu er einnig opinn fyrir aðstandendur og aðra sem hafa áhuga á að kynna sér OA samtökin.

Á föstudagskvöldinu er ekkert þátttökugjald en potturinn verður
látinn ganga skv. 7. erfðavenjunni.

Þátttökugjald er 2.000 kr. á laugardeginum til að standa undir
kostnaði við ráðstefnuna, en ef þú átt ekki pening, komdu samt!

Smellið hér til að skoða auglýsingu fyrir ráðstefnuna á pdf-formi.

23. október 2006 - Ný OA deild á Siglufirði

Stofnuð hefur verið ný OA deild á Siglufirði. Fundir deildarinnar eru á laugardögum kl. 11 í Rauðakrosshúsinu við Lækjargötu. Allir hjartanlega velkomnir.

2. október 2006 - OA kynnt á hátíðarfundi SÁÁ

Þann 10. október næstkomandi mun SÁÁ standa fyrir árlegum hátíðarfundi sínum í Háskólabíói. Fundurinn mun hefjast klukkan 20, en húsið verður opnað klukkan 19. Settir verða upp básar þar sem líknarfélögum og samtökum verður gefinn kostur á að kynna starfsemi sína. OA mun kynna starfsemi sína í einum af þessum básum. 

7. september 2006 - OA vinnustofa 

OA kvennadeildin átti 5 ára afmæli á árinu og að því tilefni mun hún standa fyrir OA vinnustofu (workshop) um trúnaðarmennsku.

Vinnustofan verður haldinn laugardaginn 16. september næstkomandi frá klukkan 10:00 - 16:00 í sal Seljaskóla, Kleifarseli 28.  Verð 500 kr. en ef þú átt ekki peninginn komdu samt.

Allir OA félagar hjartanlega velkomnir, nýliðar og lengra komnir.


5. september 2006 - OA kynningarfundur Selfossi

Þann 6. september verður haldinn kynningarfundur á Selfossi. Fundurinn verður klukkan 20-21 í AA húsinu, Hríholti 8, Selfossi.

Þrír OA félagar munu segja frá reynslu sinni af OA samtökunum.

Allir sem hafa áhuga á að kynna sér starf OA samtakanna eru hjartanlega velkomnir.

4. september 2006 - OA kynningarfundur

Sunnudagsdeild OA í Hafnarfirði hefur ákveðið að halda upp á 3ja ára afmæli deildarinnar með því að hafa OA kynningarfund á sunnudaginn 10. september kl. 12-13.

Fjórir OA félagar munu segja sögu sína og eftir það verður opnað fyrir spurningar.

Allir velkomnir sem vilja kynna sér OA samtökin og hvað þau gera. Nýliðar sérstaklega velkomnir.

28. ágúst 2006 - Nýr OA vefur fer í loftið

Nú hefur nýr OA vefur loksins litið dagsins ljós. Hér er að finna allar helstu upplýsingar um OA samtökin á Íslandi. Njótið vel. 

2. júlí 2006 - Speakerfundur væntanlegur?

Heyrst hefur að það verði reynt að fá erlendan speaker til að koma og segja OA félaögum sögu sína í haust. Frekari fréttir varðandi þetta munu koma hingað á OA.is um leið og fleiri upplýsingar berast. 

23. apríl 2006 - Mánudagsfundir hætta

Mánudagsdeildin kl.18.15 í Héðinshúsinu Seljavegi 2 er hætt. Einnig nýliðamóttakan kl. 17.30.
 
Minnum á aðra fundi OA samtakanna sjá hér.
Bent skal sérstaklega á að tekið er á móti nýliðum á miðvikudögum kl. 19.45, fimmtudögum kl. 20.30 og laugardögum kl 11.00 í Gula húsinu Tjarnargötu 20.

3. apríl 2006 - OA speaker frá Bandaríkunum

OA félagi frá Bandaríkjunum með margra ára reynslu af OA verður speaker í sunnudagsdeildinni þann 9. apríl, kl. 12-13. Við erum staðsett í AA húsinu í Hafnafirði eða Kaplahrauni 1, gengið inn við enda húsins. Allir eru velkomnir og endilega takið gesti með.

24. febrúar - Nýr kvennafundur

Búið er að stofna nýja kvennadeild í Reykjavík. Fundir deildarinnar eru á fimmtudögum kl. 21 og eru þeir staðsettir í Gula húsinu, Tjarnargötu 20.