Hvað gera OA samtökin?
Við í OA samtökunum höfum fundið leið til að losna undan áþján ofáts með því að deila reynslu okkar og styðja hvert annað. Við bjóðum velkomna alla þá sem vilja losna undan matarfíkn. Við höfum engin þátttökugjöld. Hver deild er rekin með okkar eigin frjálsu framlögum og samtökin hafna allri utanaðkomandi fjárhagsaðstoð.
OA samtökin tengjast engum félagsskap
öðrum, pólitískum,
trúarlegum eða hugmyndafræðilegum
og taka ekki afstöðu til málefna annarra en
sinna eigin. Meginmarkmið okkar er að halda okkur
frá
hömlulausu ofáti og bera boðskap samtakanna
til þeirra sem enn þjást af
matarfíkn.
OA samtökin voru stofnuð í
Bandaríkjunum í janúar
árið 1960 og á Íslandi
í 3. febrúar 1982.
Allir eru velkomnir
Félagarnir í OA hafa
orðið
nokkrus vísari. Strax á fyrsta fundinum
í samtökunum komumst við að
því að við erum altekin
hættulegum sjúkdómi. Við
uppgötvuðum líka að
geðheilbrigði, sjálfsöryggi og
viljastyrkur, sem mörg okkar héldu sig hafa
nóg af, hefur lítið að segja gegn
honum.
Við komumst að því að
orsakir sjúkdómsins skipta ekki
höfuðmáli. Það sem
skiptir mestu máli fyri okkur er þetta:
Það er til þrautreynd,
meðfærileg aðferð til að hafa
hemil á sjúkdómi okkar.
12 spora samtök
Kerfi OA til bata er byggt á samskonar kerfi AA
samtakanna. Við notum tólf reynsluspor
þeirra og tólf erfðavenjur. Eina
breytingin er að í stað orðanna
"áfengi" og "alkóhólisti" setjum
við orðin "matur" og "matarfíkill". Eins og
reynslusögur okkar bera vitni um er tólf
spora kerfið jafn árangursríkt fyrir
okkur eins og alkóhólista.
En getum við ábyrgst það
að þú
öðlist þennan bata? Svarið er
einfalt: Ef
þú vilt horfast í augu við
sannleikann um
sjálfan þig og sjúkdóminn. -
Ef
þú stundar fundi, tjáir þig
og hlustar
á aðra sem valið hafa þessa
sömu leið til
bata. - Ef þú kynnir þér rit
okkar og AA
samtakanna með opnum huga. - Og það sem mestu
máli
skiptir; ef þú ákveður
að treysta
þínum æðri mætti til
leiðsögu
í lífi þínu og fetar
öll tólf
reynslusporin eftir bestu getu, þá erum
við
sannfærð um að þú getir
bæst í
hóp þeirra sem náð hafa bata.
Hömlulaust ofát er líkamlegur,
tilfinningalegur og andlegur sjúkdómur. Til
að öðlast bata höfum við
nokkrar tillögur, en minnumst þess að
kerfið er byggt á andlegum grundvelli eins og fram
kemur í sporunum tólf.
Við erum ekki klúbbur
megrunaraðferða eða
hitaeiningatalinga. Við temjum okkur fráhald
frá
ofátinu og með tímanum minnkar
mataráhuginn
að mun og yfirgefur okkur aðlveg í sumum
tilfellum.
Við þurftum að tileinka okkur alveg
nýjan
hugsunarhátt til að ráða
við okkar innri
óróa. - Að lifa lífinu
í stað
þess að láta berast með
því. -
Með öðrum orðum: Að taka upp
nýja
lífshætti.
Með þessa afstöðu að
leiðarljósi
fetum við tólf reynsluspor O.A. til bata og beinum
sjónum okkar framhjá ofátinu
í átt
að heilsteyptum og fullgildum persónuleika.
Þegar
við tileinkum okkur reynslusporin tólf losnum
við undan
sjúkdómseinkennum ofátsins einn dag
í einu.
Þessum árangri náum við
með
því að gefast upp fyrir mætti
sem er okkur
æðri og því rækilegri
sem uppgjöfin
er þeim mun fullkomnara verður frelsi okkar
frá
matarfíkninni.
Upplýsingar um OA samtökin á Íslandi
OA Samtökin
PO Box 1783
IS-121 Reykjavík
Netfang: oa@oa.is